Ást í takt við lífið
Ég hef gengið langan grýttan veg
til að verða sú sem ég er.
Ég er loks orðin heillavænleg
og tilbúin fyrir lífið með þér.
Þú vaktir með mér grafnar kenndir
og endurbættir mitt líf.
Þú leist á mig og í vit mitt brenndir
löngun til að verða þitt víf.
Lát ástina leiða okkur fram á við
á vit hins nýja tíma.
Lát hjörtu okkar stíga á svið
og á hamingjuna stíma.
Hlustaðu á taktinn við andartakið
sem myndast því hugsanir okkar ríma.
til að verða sú sem ég er.
Ég er loks orðin heillavænleg
og tilbúin fyrir lífið með þér.
Þú vaktir með mér grafnar kenndir
og endurbættir mitt líf.
Þú leist á mig og í vit mitt brenndir
löngun til að verða þitt víf.
Lát ástina leiða okkur fram á við
á vit hins nýja tíma.
Lát hjörtu okkar stíga á svið
og á hamingjuna stíma.
Hlustaðu á taktinn við andartakið
sem myndast því hugsanir okkar ríma.