Bæn.
Jesús ég þakka fyrir þína náð
þótt ég syndug og hrjáð
hafi frá þér villst og mig burtu hrakið
þá er leiðin til þín alltaf stysst og þú yfir mér hefur vakið.

Jesús ég get aldrei skilið kærleik þann
að deyja fyrir sérhvern mann.
Ég þakka þá von sem þú gefur
og allt sem þú gert fyrir mig hefur.

Jesús ég bið þig að sýna mér
hver þinn vilji fyrir líf mitt er.
Hjálpa mér að hlusta eftir orði þínu
og láta af öllu stolti mínu.

Jesús gef mér djörfung til að segja frá
og gef mér eftir orði þínu þrá
fylltu mig af þínum anda
og hjálpa mér stöðug að standa.

Jesús lát mig eigi villast veginn víða
hjálpa mér heldur vilja þínum að hlýða.
Að ég megi skína fyrir þig sem stjarna skær,
haldast hrein og tær og dragast til þín nær.

Jesús hjálpa mér að lifa fyrir þig hvern dag
og gleyma heimsins striti mér í hag.
Hjálpa mér með lífi mínu að syngja þér lofsöng
og leið mig gegnum eilífðarinnar þröngu göng.  
Aurora Borealis
1986 - ...
einlæg bæn barns sem á allt lífið framundan og vill hafa þann sem allt veit við stýrið..
Ljóð samið:24.11.2001.


Ljóð eftir Auroru Borealis

Tilgangur lífsins
Einmanna
Orð
Ekki gefast upp.
Ekki láta það verða of seint .
Gleðin
Einmanna!
Til heimsins.
Hafið
Stríð.
Lífið er betra en þú heldur!
Samskipti.
Gleðin og sorgin.
Vonin, draumurinn og einhvern tíma.
Vinir
Gildi sannleikans.
Að taka tillit.
Nei
Bæn.
Tilgangur jólanna.
Svarið.
Góðar gjafir.
Ebenezer Scrooge.
Frelsarinn.
Vinarbréf.
þjóðerni.
Tilgangur páskanna.
Betra hinum megin.
sjálfstæð?
ef vel er að gáð.
Daglegt líf.
Uppgjöf.
þau
Bíltúrinn.
Þú ert.
Dauði Baldurs.
Heimurinn í dag.
Brotin ást
ástarsorg
Kvalir Krists.
ég sakna þín.
Hundsbit.
Njálsbrenna.
Lestarstöðin
lífið
dagatal
vor
ljóð
vélmennið gleypir ljóðin mín.
Rósin
ástfangin
Baldursbrár.
Tíminn.
Fegurð
samloka með skinku og osti
ástin.
ofurástin.
Frosin bein.
Til Frelsarans.
elskan
tveir vinir, tvær leiðir.
hringrás
skilningurinn
frostrós
flugeldar
toi, konan og hin
skákborðið

leikarinn
svörtu svanirnir
þokan
meðvirknin og mótvindurinn
geðklofinn
flækja
elska þig en elska líka mjólk
læðan
týnd
luktu augun
gamlir vinir
stríð
Gleym mér ei
bekkirnir
Angist hjartans
einbeitingarskortur
Ég er fuglinn
Ein ég
Andstæðan
Blómið
vængjalaus veruleikinn