Bara ég og sjórinn
Ein í flæðarmálinu
þar sem brimið faðmar
svartan klettinn
Finn ég salt úthafsins
á kinnum mínum
eins og forn tár
sem blandast mínum
Og þegar ég bragða
mín eigin hlýju tár
blönduð köldum tárum eilífðarinnar
Verður brjóstið gegnheilt
af öryggi einverunnar
í flæðarmálinu
þar sem brimið faðmar
svartan klettinn
Finn ég salt úthafsins
á kinnum mínum
eins og forn tár
sem blandast mínum
Og þegar ég bragða
mín eigin hlýju tár
blönduð köldum tárum eilífðarinnar
Verður brjóstið gegnheilt
af öryggi einverunnar
í flæðarmálinu