Bara svona
Elsku vinkonan mín sem ég hef ekki hitt í mörg ár og loksins þegar ég hringi er litli ömmustrákurinn þinn hann sem er mest á milli tannanna á Íslandi og þá kemur þessi upphringing hinu megin frá um eitthvað eldgamalt og þú í sunnudagsfjölskylduskylduverkefnum talandi við hana sem ekki vildi koma á sjómannadaginn fyrir svo mörgum árum og taka við hjónabandinu sem sonurinn var tilbúinn með á flugvellinum samt sagðirðu mér að þetta væri þitt barnabarn og ég fann til eins og ég væri inni í hjartanu þínu og hefði aldrei farið neitt. Já. Það er bara svona.