Samband við Æsi





Komið sælir kæru foldarbúar
kynnist betur okkar fornu sögu.
Trúarkúnstin trúarviljann kúgar
tærir hugar forðast reglu þvögu.
Einráðir hópar afsprengi trúar
eineltu heiðna af geðleysi rögu.

Lifðu hér Goðin og lifa þau enn
um langar aldir þróast Ása saga.
þúsund árin mælt í gegnum menn
mörgu góðu haldið var til haga.
Batnar við Æsi sambandið senn
saman við þurfum margt að laga.

Aldrei lokaðist Ásum hér landið
ógnar götin sjást þar og hér.
Traust á fold og tryggða bandið
trúleg bending þykir mér.
Fólkið eymdin og flökkustandið
fluttu nöfnin kunnug þér.

Valkyrjur gistu Valhallar sali
varlega Ásynjur aflinu flíka.
Líknuðu nokkra vopndauða vali
veittu af rausn er nutu slíka.
Virðingu fengu í valmanna tali
valfengnar konur atsæknar líka.

Óðinn er guða og manna mestur
margur er hans leyndarsvipur.
Hann ýmist þykir góður gestur
gjafmildur vitur sagnalipur.
Ella klórandi vargur verstur
válegur urrandi glefsandi gripur.

Traðir Óðinn þeytir átta hófa hrossi
heiðblátt sindur undan skeifum keyra.
Gandinn situr guðinn þó hann hossi
goðumlíkir þegnar nálgun heyra.
Skekur bifröst skjanna birtublossi
skellir harðir berast næmu eyra.

Ása Þór hinn mesti goða garpur
græskulaus til varnar hallar liði.
Goðið hafra hélt er gleypti sarpur
guðinn skrýtna matar hafði siði
endurskapar aftur goða garpur
goðumlíka hafra með geita sniði

Mörlandinn goðið þoldi Þór
þjónkun mikla karlinn hafði.
Í augum flestra ógnar stór
einkum þegar mjöllnir lafði.
Megingjörðum mögnun sór
meira fékk en þoldi kvarði.

Til orustu búinn er okkar maður
oddar engir á hann bitu.
Sjaldan eða aldrei glotti glaður
Goðin kátu á hann litu.
Þór minn sterki þinn er staður
stríða frenju rista fitu

Markast í bakið megingjörð
magnast gimheims krafti goðið.
Jötnar villtir í hamfara hjörð
hrottum sjaldan mörgum boðið.
Í jötna Mjöllnir skárar skörð
skaði trölla um valinn troðið.

 
Atli
1941 - ...


Ljóð eftir Atla

ER LÍFIÐ MYGLUSVEPPUR .
Guð í Efni
Herjaður Friður.
Hjallaland og Hálendi
Ást og dekur
Arðrán eða Þjóðarhagur
Niða Dvergar .
Bæjarmyndun í Kópavogi.
Ástin
Kópavogur Hverfakynning
Hverjum er að treysta
Huggun.
Axla Ypptar
Friður eða Hel.
Myndlistarráðunautur
Samband við Æsi
Öldrun
Vörðuð leið
Pólitík
STYTTAN
Foringja eða Lýðræði
LAND OG FEGURÐARVERND
Guð hinn almáttugi.