Viðbjóðsleg setning
Sársaukinn nýstir hjarta mitt
Ógeð fyllir kok mitt og líkama
Er svartar minningar flæða fram
Um niðurlæginguna, skömmina
Allt ofbeldið, þegar vonin var kramin

Mig langar að kasta upp, kúgast
Láta allt ógeðið með í klóið
Losna við sársaukann, kvölina
Sturta því niður í sjó – að eilífu

Ég hef borið þennan kross í mörg ár
Kross misnotkunnar hefur eitrað líf mitt
Athafnir mínar, orð og hugsanir
Eru lituð af þessum við viðbjóð
Já þetta er ógeð, hreinasta pest

Ég man ekki hve oft ég heyrði spurninguna
Spurninguna sem enn nýstir hjarta mitt
“ finnst þér þetta gott” ?
Á meðan það verið að meiða mig
Hvernig átti mér að finnast þetta gott
Ég svaraði sjaldan en samt...
Nýstir sektarkenndin mig djúpt
Að finnast þetta gott, það fannst mér sárast

Í dag er ég stunum spurð sömu spurningar
Sama hvort mér finnst þetta gott eða ekki
Fæ ég alltaf viðbjóð í hálsinn
Mig langar að losna við hann – algjörlega
Ég veit hvað ég get gert
Ég gef Jesús þessa setningu
Gjörðu svo vel, faðir
Þú mátt fá hana, eiga hana
Viltu létta henni af herðum mínum
Já, vona þetta var miklu betra
Takk faðir minn kær

Elfa – mars 2003
 
Elfa María
1978 - ...


Ljóð eftir Elfu Maríu

Styrkur minn er
Syndir mínar bar
þú
þú ert
Sár misnotkunnar
Kveðjan mín
lækning sáranna
stöðug með þér
Fegurð
Syndaböndin
Þreyta
Demantur Drottins
Einstakur Drengur
Glerbrot sálarinnar
Tár streyma
Hvar varstu Jesús ?
Þjónn Guðs
Tré Drottins
Eldur Drottins
Veikindi
Uppsprettulindir
Rökkur stund
Áfall og Guð
Frú Höfnun
Græsla Guðs
Viðbjóðsleg setning
litli hræddi fuglinn
konan
alkaljóð
kveðjustund-Kristín Björk
Áætlun Guðs
feikirófa
hvar varstu móðir ?
Litli hræddi fuglinn
litla tætta stelpan
lífisins stormur
vansæla konan
kærleiksblóm