1001 nótt
Tóm orð
sem lýsa aldrei hryllingnum
reyni að loka augunum
þar til það er afstaðið
fjórir grímuklæddir menn
þylja yfirlýsingu
ég skil ekki mál þeirra
en veit hvað er í vændum
þó ég viti hvað muni gerast og hefur þegar gerst
bið ég þess innra af öllum mætti
að það gerist ekki
við vorum vöruð við
samt er maður aldrei viðbúinn
miðaldra vesturlandabúi, skjálfandi af hræðslu
bundnar hendur og fyrir augu
mér finnst ég kominn í hans stað
skelfingin ólýsanleg
ég píri augun
sé sax dregið
klemmi augun en heyri gegn um myrkrið
hægt, eins og sög
hryllingsópið nístir mig
nei, tóm orð sem lýsa aldrei hryllingnum
hvenær lýkur því?
það heldur áfram og áfram
eins og því sé ekki ætlað að ljúka
loks þagnar hljóðið
ég opna agun
glittir í höfuð
píri nötrandi augun, bíð aðeins lengur
hönd með blóðugt höfuð mannsins
sem var á lífi í máttvana skelfingu
fyrir örskoti síðan
fyrir augum manns
stirnað í angistarópi
Fyrir hvað?
Frelsi?
Sjálfstæði?
Lýðræði?
Og þið spyrjið hvers vegna ég hati stríð?
Hvað ég hafi á móti hernámi?
Myndirnar renna áfram, menn, konur og börn
hver mynd annari hrottalegri
eins og maður sé ristur á hol
aftur og aftur og aftur
nei, þetta málverk get ég ekki málað
enda væri það eflaust bannað
sendiboðinn skotinn, enn ein myndin
er þetta bara mynd, nafn, tölustafir,
sem mást burt með morgunkaffinu?
Dagur eftir þennan dag
Ný gleði, ný sorg
myndir sem hreyfast og líða áfram
en þeim er ekki lokið
þessar myndir lifa, þó þær séu af ríki dauðans
og fólkið lifir líka, sem eftir er,
svipt ástvinum, örkumlað
allt lifir í ykkur, lifir í mér, með okkur öllum
sem sjá, opnum við augun
þið gleymist ekki
og hver veit
kannski getum við tekið nýjar myndir
ef við fáum nýtt myndefni
og hið gamla hverfur á braut
að eilífu
Fátækleg orð mín
til minningar um ykkur
Hvíl í friði
 
Einar Steinn Valgarðsson
1984 - ...
Þetta ljóð heitir í höfuðið á stuttri heimildamynd sem ég sá í Háskólabíói 18. mars 2006 og er innblásið af henni. Þar brá fyrir myndum af fórnarlömbum Íraksstríðsins. Myndirnar höfðu þótt of hrottalegar til þess að nokkur sjónvarpsstöð treysti sér til að sýna þær. Áhorfendur voru varaðir eindregið við myndunum. Þarna sá maður hið sanna andlit stríðsins í öllum sínum hryllingi.
Þetta ljóð er tileinkað minningu fórnarlambanna og hverra þeirra sem hljóta sömu örlög en það er jafnframt tileinkað baráttunni fyrir friði og mannréttindum hvarvetna í heiminum.


Ljóð eftir Einar Stein Valgarðsson

Víg Þráins á höfuðísum (Njála)
Quintusarkviðlingur
Heilræðavísur
Ferðaraunir (Krítarferð)
Næturljóð
Ort í sandinn
Skálaglamm
Sumarnætur
Drykkjuvísa
Undir Urðarmána
Nátttröllið
Fyrirheitna landið
Regn
Þurrkuð blöð ástarinnar
Gengið framhjá kirkjugarði
1001 nótt
Ránfuglar (uppfært)
Tilfinningarök
Svona gerum við...
Í byltingu er barn oss fætt - Árnaðaróður til Eldeyjar Gígju Vésteinsdóttur við nafngift hennar, 11. febrúar 2009
Upprisa
Andrea elskar mig
Mannúðarsjónarmið
Mannúðarsjónarmið II
Mannúðarsjónarmið III
Mannúðarsjónarmið IV
Stúlkurnar á næsta borði
Mannúðarsjónarmið V
Fésið og lækurinn
Bankaverndarlög
Svipmynd
Ólafs limrur forseta
MJ
Hausthæka
In memoriam
Veðurvísa til Vésteins bróður
Að þekkja áreitni
Alnetsvísan
Lágbeltislimra
Áhugaverðir tímar
Atvinnuleit
Rebel
Klausturdóni á Evrópuþingi
Siðferðislegar vangaveltur um Þjóðernisstefnu
Talhólfskveðja
Die Modernisierung des Mannes
Tvísöngur
Kertafleyting