Hyldýpið
Ég sekk í hyldýpi hugsanna minna.
Veit ekki hvað ég sé þar!
Ég get ekki verið of lengi í þönkum.
Ég kemst ekki að öðru en þér.
Það er ekkert í huga mér nema þú!
Þú ert sem eldur í æðum mér.
Þú ert sá sem heldur mér vakandi.
Er ég vaki læt ég mig dreyma um þig.
Er ég sef dreymir mig um þig

Er ég sef og læt mig dreyma um þig
vil ég ekki vakna,
því ég vil aldrei vakna frá þér.
Þú verður samt aldrei nær mér en þessir draumar ná.

Ég sef bara og læt mig dreyma mig með þér!  
Eva Hrund
1987 - ...


Ljóð eftir Evu Hrund

Believe
Ég er
Love
Ást
Live
Ég og þú
Jólin
Gott eða vont?
Elsku bróðir minn.
Þú!
Þráin
Enn eitt ástarljóð.
Hyldýpið
Nætur hugsanir
Flótti
Kvöldstund
Svartnættið.