Kona
Blómi allra Íslandsmeyja
Afródítu miklu fegri,
öllu í heimi unaðslegri
í örmum þínum vil ég lifa og deyja.
Þar finn ég ei þó eldum spúi
efstu loft og brennisteini,
þar mun ekkert mér að meini
meðan þér ég ann og trúi.
Nei, ekki er til í Íslands tungu
orð sem getur nógu tjáð
hve öll mín hugsun er þér háð,
hve hjartað logar í brjósti ungu.
© allur réttur áskilinn höfundi
Afródítu miklu fegri,
öllu í heimi unaðslegri
í örmum þínum vil ég lifa og deyja.
Þar finn ég ei þó eldum spúi
efstu loft og brennisteini,
þar mun ekkert mér að meini
meðan þér ég ann og trúi.
Nei, ekki er til í Íslands tungu
orð sem getur nógu tjáð
hve öll mín hugsun er þér háð,
hve hjartað logar í brjósti ungu.
© allur réttur áskilinn höfundi