Sextán ár í sjóinn
Þú gafst mér sextán ár á flösku
og skenktir mér bitru innihaldi hennar
í viðkvæmt vínglas mitt

Ég drakk í mig árin eitt af öðru
sum voru sæt en önnur súr
og mér svelgdist á.

En nú hef ég sofið úr mér
og vaknað upp við brothljóð úr grýttri fjörunni.
Þangað flaug flaskan úr hendi mér
og sundraðist á stærsta steininum,
sem stendur sterkur eftir
og horfir á brotin sextán fjara út
og ná aldrei landi.

SiKri  
SiKri
1962 - ...


Ljóð eftir SiKra

Óttást
Og mennirnir elska
Kjarni
Ástin MÍN
Nú geispa grjótin á sandi
Sleppt
Svikul drusla
Hlutleysi
Sextán ár í sjóinn
Eldfim orð
Hvar?
Mánuður
Draumar
Endurnýjun
„Hjálpi mér“
Leiðangur
Heimferð
Sálumessa martraðar
Sjötta vitið
Að græða
Sönn hamingja
Við: ég & þú
Beggja blands
Ákvörðun
Eftirtekt
Afhjúpun
Lausn
Upprisa
\"Glötuð\" tilfinning
\"Pörfikt matz\"
Opnun
Bróðir
Kveðja
Mynd Guðs
Dóttir
Sonur
Gáta lífsins
Hugrenning um hamingju