Allt sem þú óttast.
ég hata, ég hata.
ég hljóma eins og biluð plata!
ég ljái hatrinu rödd mína!
ég er talsmaður myrkursins
og aðdáandi tilgangsleysisins.
ég er allt sem þú óttast.
ég er svarið sem finnst ekki,
ég er tíminn sem líður of hratt,
ég er ástin sem er ekki til.
ég er sársaukinn sem öskrar í þögninni
og þögnin sem sefur í sárinu.
ég er aldurinn sem eldist með árinu,
ég er sársaukinn sem fellur með tárinu.
ég er aukakílóin á vigtinni!
ég er myrkrið í birtunni!
ég er bletturinn á skyrtunni!
ég er allt sem þú óttast.
ég hljóma eins og biluð plata!
ég ljái hatrinu rödd mína!
ég er talsmaður myrkursins
og aðdáandi tilgangsleysisins.
ég er allt sem þú óttast.
ég er svarið sem finnst ekki,
ég er tíminn sem líður of hratt,
ég er ástin sem er ekki til.
ég er sársaukinn sem öskrar í þögninni
og þögnin sem sefur í sárinu.
ég er aldurinn sem eldist með árinu,
ég er sársaukinn sem fellur með tárinu.
ég er aukakílóin á vigtinni!
ég er myrkrið í birtunni!
ég er bletturinn á skyrtunni!
ég er allt sem þú óttast.