Frillublús
Ég átti´eitt sinn ágætis konu,
sem átti að ala mér sonu.
Hún gaf mér fyrst ást
en lét mig svo þjást.
og eyddi´allri barneignar vonu.

Ég ráðvilltur ráfaði´í villu
og réði mér ókunna frillu,
sem vildi´enga ást
bara´í rúminu kljást
nú var ég á rándýrri hillu.

Ég áttaði mig á þeim fjanda
sem búið var mér í að blanda.
Nú sá ég það þar,
að næstum ég var
í fjármálum búinn að stranda.

Nú konur ég kaupi ey lengur
karlinn varð saklaus drengur.
Með tvinna og nál
af lífi og sál.
hnýttur var buxnastrengur.

SvaBja
 
SvaBja
1980 - ...
Þetta er ekki reynslusaga!!!


Ljóð eftir SvaBja

Veðurspáaprump
Frillublús
Síðasti svefninn
Falski máni
Kári kveður
Með Sting í maganum
Stríðið
Lífið
Þú kemur og kyssir mig blítt
Skammarbréfið
Svörin
Blautir draumar