lífið
ég er stríðsmaður
lífið
stríðið
tek þátt í bardögum á hinum ýmsu vígvöllum
flestir fara fram að innan.
stríði við
hugann
draumana
tilfinningarnar
réttlætiskenndina
girndina
syndina
fíknina
ástina
letina
sorgina
uppgjöfina
myrkrið
fallið
berst við
hinar sálirnar
í stóru og smáu
engar Sameinaðar Þjóðir til milli einstaklinga
engir sáttmálar
stríð
í friðsamlegum búningum hversdagsleikans
í misjöfnum myndum
augnaráðum
orðaskiptum
kúgunum
skoðunum
allir fylgja sinni eigin herkænsku
sinni eigin tækni
skjóta úr byssum
sem mynda holur
grunnar
djúpar
rista með hnífum
sem mynda sár
rispur
stungur
nýjasta tækni vopna sem þó hefur alltaf verið til
líkamleg
andleg
mannleg
falleg?
innri stríðin snúast
mikið um hvernig binda skal um sárin
frá hinum hermönnunum
til hinna hermannanna
rifna þau aftur upp?
þeir hæfustu lifa af.
lífið
stríðið
tek þátt í bardögum á hinum ýmsu vígvöllum
flestir fara fram að innan.
stríði við
hugann
draumana
tilfinningarnar
réttlætiskenndina
girndina
syndina
fíknina
ástina
letina
sorgina
uppgjöfina
myrkrið
fallið
berst við
hinar sálirnar
í stóru og smáu
engar Sameinaðar Þjóðir til milli einstaklinga
engir sáttmálar
stríð
í friðsamlegum búningum hversdagsleikans
í misjöfnum myndum
augnaráðum
orðaskiptum
kúgunum
skoðunum
allir fylgja sinni eigin herkænsku
sinni eigin tækni
skjóta úr byssum
sem mynda holur
grunnar
djúpar
rista með hnífum
sem mynda sár
rispur
stungur
nýjasta tækni vopna sem þó hefur alltaf verið til
líkamleg
andleg
mannleg
falleg?
innri stríðin snúast
mikið um hvernig binda skal um sárin
frá hinum hermönnunum
til hinna hermannanna
rifna þau aftur upp?
þeir hæfustu lifa af.
02.05.04.