Myrkfælni
Heyrirðu myrkrið falla á?
Hversdagsleikinn hverfur eins og dögg fyrir sólu
og völundarhús myrkursins leikur sér að huga mínum
ég finn hvernig myrkrið stígur þunglega fyrir aftan mig
þar er bara svarta nóttin þegar ég lít við
ég finn hvernig hendur óttans leika um huga minn
þær fara græðgislega um alla króka og kima
og finna alltaf það sem þær leita að.

Litla barnið sem ég hef troðið niður í djúp sálar minnar
kemur aftur upp á yfirborðið
og ég get ekki annað gert en að kíkja undir sængina
og inn í skáp
til að friða litlu stúlkuna.  
Eygló Daða Karlsdóttir
1973 - ...


Ljóð eftir Eygló Döðu

Timburmenn
Að heiman
Skuggi vitundarinnar
Visin rós
Einsemdin
Teflt við Guð
Kona dauðans
Andlitið
Veruleikaflótti
Drottning hafsins
Haglar í helvíti
Draumur
Bergmál
Spegill, spegill herm þú mér
Spegilmynd
Syndug
Til Halldórs á laugardegi
Reykjavík
Medúsa
Regn í myrkri
Mannsaldan
Kerlingin og Dauðinn
Á fjöllum
Drullupollurinn
Nýjar tíðir
Gremja
Svikin
Horfnir draumar
Angist
Bláar rósir
Þunglyndi
Myrkfælni
samviskubit
Vökuvísa
Breytingar
Þunnur
Hringiða augnabliksins
Óskalög sjómanna
Söngur hins svefnlausa
Brunarústir
Morgunkaffi
Menningarmiðaldir
Horft í hyldýpið
Heimur: síðustu andartökin
Kvenna hlátur
Skammdegi
Skuggi
Ég og borgin
Í rauðum hælum
Sjómannssál
Ósk sjómannsins
missir
Tungunnar vandræði
Ljóðadrekinn
Ást í bít(l)unum
Sannleikann eða kontór?
Geðhvörf árstíðanna
Grasið er ávallt grænna
Ímynd hamingjunnar
D-Dagur
Sunnudags vankvæði
Hringiða
Minningar í myrkri
Hrá
Spilum við snáka og stiga?
Absúrdismi
Von
Það vorar