missir
Heyrirðu sál mín,
heyrirðu það gróa?
Grasið hinum megin við árbakkann?
Þar sem allt er svo grænt og skógi vaxið
berin vaxa villt og börnin leika sér nægjusöm.

Heyrirðu sál mín
glamrið í bílunum sem bíða?
Bíða eftir að komast með ferjunni

Yfir.

Heyrirðu sál mín
kall mitt
heyrðirðu sál mín
það óx, það óx
og þegar það hætti að vaxa
hættirðu þá að hlusta?

Innra með þér. mér.

Heyrðu sál mín
hættu þessu væli
syntu yfir sundið
þar er grasið grænna,
þar vaxa þau ótt og títt
litlu börnin,
og berin.

 
Eygló Daða Karlsdóttir
1973 - ...


Ljóð eftir Eygló Döðu

Timburmenn
Að heiman
Skuggi vitundarinnar
Visin rós
Einsemdin
Teflt við Guð
Kona dauðans
Andlitið
Veruleikaflótti
Drottning hafsins
Haglar í helvíti
Draumur
Bergmál
Spegill, spegill herm þú mér
Spegilmynd
Syndug
Til Halldórs á laugardegi
Reykjavík
Medúsa
Regn í myrkri
Mannsaldan
Kerlingin og Dauðinn
Á fjöllum
Drullupollurinn
Nýjar tíðir
Gremja
Svikin
Horfnir draumar
Angist
Bláar rósir
Þunglyndi
Myrkfælni
samviskubit
Vökuvísa
Breytingar
Þunnur
Hringiða augnabliksins
Óskalög sjómanna
Söngur hins svefnlausa
Brunarústir
Morgunkaffi
Menningarmiðaldir
Horft í hyldýpið
Heimur: síðustu andartökin
Kvenna hlátur
Skammdegi
Skuggi
Ég og borgin
Í rauðum hælum
Sjómannssál
Ósk sjómannsins
missir
Tungunnar vandræði
Ljóðadrekinn
Ást í bít(l)unum
Sannleikann eða kontór?
Geðhvörf árstíðanna
Grasið er ávallt grænna
Ímynd hamingjunnar
D-Dagur
Sunnudags vankvæði
Hringiða
Minningar í myrkri
Hrá
Spilum við snáka og stiga?
Absúrdismi
Von
Það vorar