Rómantík
Hvaða tík er nú það? Spyr þú..
Það þarf ekki að vera kvöldverður, kertaljós,
ljóðalestur við arineld, háfleyg orð,
næturganga, fjara, tunglsljós,
eða hringur og eitt lítið bónorð!
Það eru öll litlu smáatriðin, það er satt!
Eins og koss að morgni,
honum fylgja þrjú lítil orð.
Miðar, sem innihalda ástarjátningar og á mínum vegi verða.
Segir að ég sé falleg þó svo að ég sé nývöknuð, úldin.
Vel mælt!
Segir þú og tekur mig í fangið,
við föllum í drifhvíta fönn.
Gæti ekki sleppt þér þó mig langi,
ást okkar er sönn..

17.11.2004