Hafðu Trú
Trú og trúarbrögð eru mikilvæg í allri okkar tilveru
Að hafa trú, sálarró af sér gefur.
Allt það vonda og slæma
Góða orku burtu frá þér nær að flæma
Öll stríð, allt í neikvæðum tón
Missum við alla skýru sjón
Á öllu góða sem er enn til
Því þú getur nefnilega áorkað allt sem þú vilt.
Margt vonin gefur
Markmið þín á vissa stefnu setur
Vertu opinn og hafðu trú
Því staðreyndin er sú
Gott viðhorf gagnvart öllu í lífinu
Gefur jákvæða og ljósa línu
Meðfram sál þinni og hjarta
Gerir framtíðina bjarta.
Eins og ég segi..
Kraftaverkin gerast á hverjum degi!  
Birna Rún
1988 - ...


Ljóð eftir Birnu Rún

Þakklæti
Bitrun
eftirsjá
Sannleikur
Óstöðugleiki
Örlög
Fjólubláir geislar
Lífshringur
Afneitun
Vonleysi
Vináttutengsl
Nauðgun
Gaur
Afhverju?
Eymd
Sambandsslit
Straumur
Hafðu Trú
Talaðu
Ástæða
Von
Orkuleysi
Veistu af mér eða ekki, gefðu mér einhverskonar merki