Að vera með þér
Að vera með þér væri eins og að fljúga með fuglunum, finna frelsið fanga mig.
Að vera með þér væri ekkert léttúðugt hliðarspor, kerfisbundin leit að hlýju.
Að vera með þér yrði eins og hitabeltisstormur og krafturinn og orkan myndi breyta landslagi lífs míns það sem eftir væri..
Eða það myndi ég halda ef ég væri með þér

Apríl ´06 - um Hann sem verður aldrei