

Það grefur í sári lítillar stúlku,
en hún grætur ekki tárum.
Það urrar í maga lítllar stúlku,
en hún grætur ekki tárum.
Það eru brestir í hjarta
lítillar stúlku,
en hún grætur ekki tárum.
Af hverju grætur hún
ekki tárum?
Hún kennir svo til
að hún getur ekki grátið