Brjálæðingurinn
Sjá!
Það færist ljós inn um
mjóa skímuna.
Það er að birta til í helvíti.
Kannski er verið
að sækja mig,
kannski á ég núna
eitthvað betra skilið.
Kannski hefur heimurinn
fyrirgefið mér syndir mínar.
Fyrirgefið að ég fæddist!
Ég valdi það ekki.
Engin afsökun?
Víst er það afsökun!
Ég valdi ekki að vera hunsuð
af öllu og öllum í kringum mig.
Kannski eru þið núna
búin að læra
að ég er allt
ég á allt
og ég ræð öllu.
Enginn er
merkilegri en ég!