Ístúr
Ég sá þig, með vanilluís
Og ég hugsaði með mér, ætli hann vilji bragða á súkkulaðiís?
Og ég leyfði þér að smakka...
(Þú gæddir þér á mér, ég gaf mig á þitt vald. Þvílíkt vald. Ég naut hverrar mínútu, eins og barn í sælgætisbúð, sem ég og var. Óviti að leika sér að eldnum, sem ég brenndi mig á, eldnum sem þú hafðir kveikt.)
...en þú sagðir að þér þætti súkkulaði ekki gott, skildir mig eftir með tóma skál, og fékkst þér jarðarberjaís

(31.08.2004)