Ekki allsvarnað
Ekkert svar á ég elsku besti
við englaorðum þínum
Herrann minn á hvítum hesti
huga stelur mínum

Tíminn tiplar á tánum nú
tíminn er lengi að líða
þegar hann sýnir tuttugu og þrjú
þarf ég ei lengur að bíða

Kossinn þrái kinn mína á
kossinn allra besta
Áköf er mín ástarþrá
ákall til hins mesta
 
Björgin
1964 - ...


Ljóð eftir Björgina

Vinarbæn
Titringur
Söknuður
Lítið barn
Kveðja
Ekki allsvarnað
Án titils
Bæn
Hvenær........??
Bænar-korn
Minningarbrot.... hvers??
Að leiðarlokum
Líf
Týndi prinsinn
Í upphafi.....
Örþankar
Draumur.. já ætli það ekki bara :o)
Vonlaus draumur??
Krumlan
Takk minn kæri
Stelpuskottið mitt
Magapest
Enn ein bænin
Kvíðastormur
Vinur minn
Upprisa
Hringferð
Falleg sending
Golf