Afhverju ég?
Ligg við hlið hans
og hlusta.
Hlusta á andadrátt
hans í þögninni.
Hann sefur djúpum
draumlausum svefni.
Stoppar andartak,
byrjar aftur.
Skil ekki,
vil skilja.
Hvers vegna?
Hvers vegna ég?
Dreymi dagdrauma,
drauma sem enda vel.
Hann segist elska mig.
En afhverju mig?
Hvað hef ég fram að færa
sem hann sækist eftir?
Hann gaf mér gjafir,
fjórar dýrmætar gjafir.
Fyrir það er ég þakklát,
svo eilíflega þakklát.
Þetta vildi ég.
En af hverju mig?  
Vjofn
1979 - ...


Ljóð eftir Vjofn

Ástin,
Kraftur ástarinnar.
Frelsi.
Keisarinn í Kína.
Indíánabardagi Lífsins.
Við.
With Love
Hann
Umhverfi.
Rósin
Fjarlægðin.
Andvaka
Vináttan & Frelsið.
Minning
Tilfinningastríð
Eskifjörður!
To go in life.
Minningin mæta.
Nærvera
Hversu.
Litlir englar.
Ljósir lokkar.
Lítið fræ.
Afhverju ég?
Við hlið mér!