ÞÆR ÞUNGU BYRÐAR
Þær burðast með brjóstin sín
stór og smá
í vinnuna alla daga.
Bölsótast yfir akrinum
en gleðjast því allir fá bein að naga.
Safna skal heim
fallegum perlum og steinum.
Heimili eru klofin, friðhelgin rofin.
því frelsi þær vilja
og sauma fyrir hofin.
Þær burðast með brjóstin sín
stór og smá
á akrinum alla daga.
Karlveldi hafna
Í kvenfrelsi þær dafna.
Brjóstin skulu burt.
Kerlingar skulu keyra trukk
skurðgröfum og ýtum
löndum stjórna
er þær sigur bera úr bítum.
stór og smá
í vinnuna alla daga.
Bölsótast yfir akrinum
en gleðjast því allir fá bein að naga.
Safna skal heim
fallegum perlum og steinum.
Heimili eru klofin, friðhelgin rofin.
því frelsi þær vilja
og sauma fyrir hofin.
Þær burðast með brjóstin sín
stór og smá
á akrinum alla daga.
Karlveldi hafna
Í kvenfrelsi þær dafna.
Brjóstin skulu burt.
Kerlingar skulu keyra trukk
skurðgröfum og ýtum
löndum stjórna
er þær sigur bera úr bítum.