1. sálmur
Um herrans Kristí útgang í grasgarðinn

Innleiðslan

1.
Upp, upp mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi til,
herrans pínu ég minnast vil.

2.
Sankti Páll skipar skyldu þá,
skulum vér allir jörðu á
kunngjöra þá kvöl og dapran deyð
sem drottinn fyrir oss auma leið.

3.
Ljúfan Jesúm til lausnar mér
langaði víst að deyja hér.
Mig skyldi og lysta að minnast þess
mínum drottni til þakklætis.

4.
Innra mig loksins angrið sker,
æ, hvað er lítil rækt í mér.
Jesús er kvalinn í minn stað,
of sjaldan hef ég minnst á það.

5.
Sál mín, skoðum þá sætu fórn
sem hefur oss við Guð, drottin vorn,
fordæmda aftur forlíkað.
Fögnuður er að hugsa um það.

6.
Hvað stillir betur hjartans böl
en heilög drottins pína og kvöl?
Hvað heftir framar hneyksli og synd
en herrans Jesú blóðug mynd?

7.
Hvar fær þú glöggvar, sál mín, séð
sanna Guðs ástar hjartageð,
sem faðir gæskunnar fékk til mín,
framar en hér í Jesú pín?

Textinn

8.
Ó, Jesú, gef þinn anda mér,
allt svo verði til dýrðar þér
uppteiknað, sungið, sagt og téð,
síðan þess aðrir njóti með.

9.
Að liðinni máltíð lofsönginn
las sínum föður Jesús minn.
Síðasta kvöldið seint það var,
sungu með hans lærisveinar.

10.
Guðs sonur sá sem sannleiksráð
sjálfur átti á himni og láð
þáði sitt brauð með þakkargjörð
þegar hann umgekkst hér á jörð.

11.
Þurfamaður ert þú, mín sál,
þiggur af drottni sérhvert mál
fæðu þína og fóstrið allt.
Fyrir það honum þakka skalt.

12.
Illum þræl er það eilíf smán
ef hann þiggur svo herrans lán
drambsamlega og dreissar sig.
Drottinn geymi frá slíku mig.

13.
Eftir þann söng en ekki fyrr
út gekk Jesús um hússins dyr.
Að hans siðvenju er það skeð,
til Olíufjallsins ganga réð.

14.
Lausnarans venju lær og halt,
lofa þinn Guð og dýrka skalt.
Bænarlaus aldrei byrjuð sé
burtför af þínu heimili.

15.
Yfir um Kedrons breiðan bekk
blessaður þá með sveinum gekk.
Sá lækur nafn af sorta ber.
Sýnir það góðan lærdóm mér.

16.
Yfir hörmungar er mín leið
æ meðan varir lífsins skeið.
Undan gekk Jesús, eftir ég
á þann að feta raunaveg.

17.
Horfi ég nú í huga mér,
herra minn Jesú, eftir þér.
Dásamleg eru dæmin þín,
dreg ég þau gjarnan heim til mín.

18.
Þú vildir ekki upphlaup hart
yrði þegar þú gripinn varst.
Út í grasgarðinn gekkstu því,
gafst þig í manna hendur frí.

19.
Af því læri ég að elska ei frekt
eigin gagn mitt svo friður og spekt
þess vegna raskist, þér er kært
þolinmæði og geð hógvært.

20.
Sorgandi gekkstu sagða leið,
særði þitt hjarta kvöl og neyð.
Hlæjandi glæpa hljóp ég stig,
hefur þú borgað fyrir mig.

21.
Vort líf er grasgarðsganga rétt.
Gröfin er öllum takmark sett.
Syndugra leið ei leik þér að,
lendir hún víst í kvalastað.

22.
Iðrunartárin ættu vor
öll hér að væta lífsins spor.
Gegnum dauðann með gleði og lyst
göngum vér þá í himnavist.

23.
Þá Jesús nú á veginum var
við postulana hann ræddi þar,
henda mundi þá hrösun fljót.
Harðlega Pétur þrætti á mót.

24.
Frelsarinn Jesús fyrir sér
þá fall og hrösun er búin mér.
Hann veit og líka lækning þá
sem leysa kann mig sorgum frá.

25.
Aldrei, kvað Pétur, ætla ég
á þér hneykslast á nokkurn veg
þó allir frá þér falli nú.
Fullkomleg var hans lofun sú.

26.
Sú von er bæði völt og myrk
að voga freklega á holdsins styrk.
Án Guðs náðar er allt vort traust
óstöðugt, veikt og hjálparlaust.

27.
Gef mér, Jesú, að gá að því,
glaskeri ber ég minn fésjóð í.
Viðvörun þína virði ég mest,
veikleika holdsins sér þú best.  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

bekkur: lækur
dreissa sig: hreykja sér, dramba
forlíka: sætta
frekt: ákaflega, eindregið
sankti (latína): heilagur


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið