33. sálmur
Um Kristí krossfesting

1.
Kom loks með krossins byrði
Kristur í Hausastað.
Örþjáður trú? ég hann yrði.
Edik galli blandað
honum þeir héldu að.
Drottinn vor dýrðar mildi
drekka þó ekki vildi
þá hann smakkaði það.

2.
Fals undir fögru máli
fordildarhræsnin ber.
Vinátta tempruð táli,
trúarlaus iðrun hér,
edik gallblandað er.
Svoddan súrdreggjarvíni
þó sjáist glyslega skíni
herrann hrindir frá sér.

3.
Það tek ég víst til þakka
þá þú vilt, drottinn kær,
súrt með þér sjálfum smakka.
Sé þín miskunnin skær
í hverri neyð mér nær.
Gallbeiskju bölvaninnar
og bikarinn heiftar þinnar
burt settu frá mér fjær.

4.
Nakinn Jesúm á jörðu
Júðar krossfestu þar
með heiftarsinni hörðu.
Hendur og fæturnar
teygt allt og togað var.
Gekk svo járngaddur nistur
gegnum lófa og ristur,
skinn og bein sundur skar.

5.
Tveggja morðingja á milli
miskunnarherrann hékk.
Spádóminn frá ég að fylli
sem fyrr meir um það gekk.
Ræðir svo ritning þekk.
Þjónn minn, sá einn útvalinn,
er með spillvirkjum talinn,
forsmán mjög þunga fékk.

6.
Nú ég minnist á næsta
nakinn þá Adam stóð
við tréð með hörmung hæsta,
hjartasorg, böl og móð,
því verk hans voru ei góð.
Innvortis angrið kvaldi,
undir trjánum sig faldi.
Þess galt öll heimsins þjóð.

7.
Nú aftur Jesús nakinn
negldur á trénu stóð,
píndur, húðstrýktur, hrakinn,
hjartans bar sáran móð.
Þó voru verk hans góð.
Einn fyrir engum faldist,
opinberlega kvaldist.
Þess naut öll heimsins þjóð.

8.
Horfi ég á hendur þínar,
herra minn, Jesú kær.
Fyrir misgjörðir mínar
meinin slík liðu þær.
Blóðdreyrinn dundi skær.
Saurgun sálar og handa
sem mér oft kom í vanda
af hreint með öllu þvær.

9.
Fús var ég fram að halda
ferli glæpanna hér.
Þess fætur þínir gjalda,
það varð til líknar mér.
Drottinn, ég þakka þér.
Fram á friðarins leiðir
fótspor mín jafnan greiðir
héðan af hvar ég fer.

10.
Guð gæfi að mitt hold mætti
með þér krossfestast nú
frá öllum illskuhætti.
Ósk mín er dagleg sú,
minn herra, það veist þú.
Upp á það önd mín kynni
óhindruð gæsku þinni
þjóna með þýðri trú.

11.
Einn með illræðismönnum
allir þig héldu þá
sem í heilagleik sönnum
sjálfur komst himnum frá.
Nú ég þess njóta má
af því ég er útvalinn
einn með Guðs börnum talinn,
þar treysti ég eflaust á.

12.
Ég mun meðan ég hjari
minnast á krossinn þinn.
Heimsins ljúfi lausnari,
lífgar það huga minn.
Hvort ég geng út eða inn,
af innstum ástargrunni
ætíð með huga og munni
segjandi hvert eitt sinn:

13.
Jesú Kristí kvöl eina
á krossinum fyrir mig skeð
sé mín sáttargjörð hreina
og syndakvittunin,
af sjálfum Guði séð.
Upp á það önd mín vonar
í nafni föður og sonar
og heilags anda.

...........Amen.
 
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

frá: fregna, frétta, heyra
nistur: sem nístir í gegn


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið