36. sálmur
Um skiptin á klæðunum Kristí

1.
Stríðsmenn þá höfðu krossfest Krist
klæðnað hans tóku snart,
skiptu í staði fjóra fyrst,
fá skyldi hver sinn part.
Á kyrtil prjónaðan ljóst með list
lögðu þeir hlutfall djarft.
Fólskuverk meðan fullgjörðist
fólkið á horfði margt.
2.
Ritning sú eina uppfyllt er,
áður var þar um skráð:
Skrúða mínum þeir skiptu sér,
skýrlega svo er tjáð.
Hlutfallið yfir fat mitt fer,
fæ ég þess einnig gáð.
Set, maður, slíkt fyrir sjónir þér,
sjá drottins miklu náð.

3.
Nú máttu skilja, nakinn var
negldur drottinn á kross.
Opinbert sáu allir þar
út runninn dreyrafoss.
Svoddan forsmán Guðs sonur bar
sannlega fyrir oss.
Hér bauðst öllum án hylmingar
himneskt miskunnarhnoss.

4.
Kalla ég merki klæðin hans
kristnina í heimi hér.
Um fjórar álfur foldarranns
flokkur sá dreifði sér.
Lífskyrtill þessi lausnarans
líknarorð blessað er.
Vilji því skipta skynsemd manns
skilning sannleiksins þverr.

5.
Ei lét vor drottinn auðlegð há
eftir í þessum heim:
Klæðin sem hann bar holdi á
en hvorki gull né seim.
Þó mátti ei hans móðir fá
hið minnsta af öllum þeim.
Illir menn hendi yfir þau slá,
aldrei því dæmi gleym.

6.
Safna hóflega heimsins auð,
hugsýkin sturlar geð.
Þigg af drottni þitt daglegt brauð,
duga lát þér þar með.
Holdið þá jörðin hylur rauð
hlotnast má ýmsum féð.
Svo þig ei ginni girndin snauð,
gæt vel hvað hér er skeð.

7.
Stríðsmanna heift og harðýðgi
herrans kvöl gat ei mýkt,
þó viti nóg hann særður sé,
sinnið var illsku ríkt.
Þeir sem fátækan fletta fé
fólskuverk drýgja slíkt.
Guð láti þig ekki glæp þann ske
að gjörir annað þvílíkt.

8.
Nakinn á krossi hékkstu hér,
herra minn, Guð og mann.
Fullnaðarborgun fengin er
fyrir mig syndugan.
Þá fórn drottinn og sál mín sér,
sú gleðst en blíðkast hann.
Brullaupsklæðnað til bjóstu mér,
þann besta ég girnast kann.

9.
Hentuglega féll hlutur sá,
herra minn, Jesú kær.
Þú lést mig auman finna og fá
fagnaðarorð þín skær.
Þeim klæðafaldi þreifa ég á
þegar mig hryggðin slær.
Straumur eymdanna stöðvast þá,
styrk nýjan hjartað fær.

10.
Hér þó nú skipti heimurinn
hlæjandi auði sín,
endast sá glaumur eitthvert sinn
þá ævin lífsins dvín.
Láttu mér hlotnast, herra minn,
hlutfall næst krossi þín,
svo dýrðar fegursti dreyri þinn
drjúpi á sálu mín.

..................Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

seimur: auður, gull
snart: skjótt


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið