38. sálmur
Um háðung og brigsl sem Kristur leið á krossinum

1.
Þeir sem að Kristí krossi senn
komu og fram hjá gengu,
hristu með háðung höfuðin,
honum til brigslis fengu,
heitorð sín hefði hann haldið lítt,
herrans musteri að brjóta,
á þremur dögum annað nýtt
efna með bygging fljóta.

2.
Tveir lugu svoddan falsmenn fyrst
fyrir Kaífas dómi,
af því hafði það út borist
eftir fjölmennisrómi.
Þessir þó hafi heyrt og séð
herrans jarðteiknir fríðar,
lygin þeim betur gafst um geð.
Gengur svo enn til víðar.

3.
Öldungar landsins, fólkið flest
og flokkur heiðinn stríðsmanna
herrann vorn Jesúm hæddu mest
með höfðingjum prestanna,
sögðu: Ef ertu son Guðs kær,
sá þig með krafti styður,
kom þú hér svo það sjáum vér
sjálfur af krossi niður.

4.
Hann sá er öðrum hefur hér
hjálpað og læknað marga,
megnar nú ekki að sönnu sér
sjálfum úr neyð að bjarga.
Svoddan háðyrði, hróp og dár
hlaut þá Jesús að líða.
Stóð það yfir um stundir þrjár.
Stutt var andláts að bíða.

5.
Þá fram hjá Kristí krossi nú
kallsandi held ég ganga
sem ekki af hjartans ást og trú
elska hans pínu stranga.
Heilagleik sínum hrósa frí,
við holdsins fýsn sig binda,
síðan falla örvænting í
eða forherðing synda.

6.
Að þínum krossi, Kriste kær,
kem ég sem einn framandi.
Gef þú mér leyfi að ganga nær,
geð mitt styrki þinn andi
svo ég hugleiði hvað til kom.
Háðung, briglsorð og pínu
leiðstu, manngæsku mildin fróm,
móti andláti þínu.

7.
Sál mín og líf þær sæmdir hlaut
sjálfs Guðs musteri að heita,
í skírninni því ég þín að naut,
það nam Guðs andi veita.
Síðan hefur það syndin mörg
sárlega gjört að brjóta.
Holdsnáttúran mjög elskar örg
athæfið heimsins ljóta.


8.
Á þremur dögum þar á mót
því hét ég mörgu sinni,
með iðran, trú og yfirbót
aftur það bætast kynni.
Æ, hvað veitir slíkt erfitt hér,
efnin og dug vill þverra.
Brigslið sem til var búið mér
bar nú Jesús, minn herra.

9.
Í velgengninni ég hrósa hátt
hraustleika trúarinnar,
í mótlætinu hún bilar brátt,
brest finn ég stóran hennar.
Enginn fullkominn á mér sést
ávöxtur dyggða sætur.
Bar því fyrir mig brigslið verst
blessaður Jesús mætur.

10.
Hjálpa læst ég með heilnæm ráð
hinum sem illa breyta,
sjálfs míns lýta þó síst fæ gáð,
svoddan má blindni heita.
Mér var þar stærsta minnkun að,
mátti háðyrðum kvíða.
Burt tók nú Jesús bölið það,
brigslin því vildi hann líða.

11.
Jesú, í þínu andláti
yfir þig brigslin dundu,
að svo í friði önd mín sé
á minni dauðastundu.
Hæddur varstu af öllum einn,
alla frá háðung leystir.
Aldrei tapast sá nokkur neinn
sem nafn þitt upp á treystir.
12.
Nær sem hrekkvísra háðung ný
hjartað mitt sárt vill stanga
undir þinn kross ég feginn flý,
fram hjá skal eigi ganga.
Þar stend ég kyrr þó kalls og spé
kveiki mér heims óblíða.
Upp á þig, Jesú, einn ég sé,
allt vil ég með þér líða.

13.
Fyrst þú varst hæddur, herra, þá
harmakvöl leiðstu slíka
svo heiðri þig nú héðan í frá
himnar og jörðin líka.
Allir englar og öll heimsmynd
undir þitt vald sig hneigi
og ég þar upp á, aum mannkind,
amen af hjarta segi.

..................Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

dár: háð
frómur: góður
kalls: háð, spott


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið