31. sálmur
Prédikun Kristí fyrir kvinnunum

1.
Fólkið sem drottni fylgdi út
fylltist margt angri hörðu.
Kvinnurnar grétu sárt með sút
sem hans kvöl aumka gjörðu.

2.
Sneri til þeirra son Guðs sér,
sagði þá herrann mætur:
Grátið þér ekki yfir mér,
ó, Jerúsalems dætur.

3.
Sona yðar og eigin eymd
eflaust þér gráta megið.
Nálgast sú tíð sem nú er geymd,
nær þér harmandi segið:

4.
Sæl nú óbyrjan barnlaus er
og brjóst þau ei sogin voru.
Hrynji yfir oss hálsarnir,
hæðir og björgin stóru.

5.
Ef gjört er svo því græna tré,
geta hver til þess næði,
hvað hið þornaða þá mun ske,
það frá ég Jesús ræði.

6.
Ó, hvað veraldar virðing er
völt og svikul að reyna.
Gæt þess, mín sál, og sjáðu hér
sannprófað dæmið eina.

7.
Á pálmasunnudag sjálfur inn
son Guðs í borg nam ríða.
Ástvinir hans það sama sinn
sungu lof án alls kvíða.

8.
Fám dögum síðar sjálfur út
særður með kross nam ganga.
Það hlutu hans vinir að sjá með sút,
sorg hjartans báru stranga.

9.
Hafi svo verið völt og flá
veröldin herra sínum,
hvers má sér vænta þrællinn þá?
Þess gæt í huga þínum.

10.
Þeim sem hún býður blíðleik sinn
búin er sorgin mesta.
Hirtu því aldrei huga þinn
við hana, mín sál, að festa.

11.
Sannlega skyldugt segi ég mér
sára þá kvöl að gráta
sem, drottinn Jesú, þungt að þér
þrengdi í allan máta.

12.
Samt er þér ekki þént með því
þó ég þig aumka vildi.
Eilífa hátign ertu í
upphafinn, Jesú mildi.

13.
Þar má nú heldur aukast af
angur samvisku minnar,
orsök ég til og efni gaf
allrar hörmungar þinnar.

14.
Erfiði hef ég aukið þér
of þungt með syndum mínum.
Glæpanna sem ég gjörði hér
galstu á holdi þínu.

15.
Hræðist ég mér sé hulin geymd
sú hefnarpínan stranga,
því ég vann til að eilíf eymd
yfir mig skyldi ganga.

16.
En þó gleð ég mig aftur við
ávöxtinn kvala þinna.
Þar af öðlast ég frelsi, frið
og forlát synda minna.

17.
Angistin sár og sorgarlát
er sál helst þjáði mína,
snýst í fögnuð og fegingrát
fyrir þá miskunn þína.

18.
Bið ég nú, Jesú blíði, þig,
sem bót mér gjörðir vinna:
Lát engan gjalda eftir mig
illsku né synda minna.

...........Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

forlát: fyrirgefning
frá: fregna, frétta, heyra
sorgarlát: látbragð (hegðun) sorgar
sút: sorg


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið