45. sálmur
Um Jesú dauða

1.
Þá frelsarinn í föðurins hönd
fól nú blessaður sína önd,
niður sitt höfuð hneigði fyrst
herrann í því hann sálaðist.
Drottinn vor þannig dó á tré,
dásemd kunni ei meiri ske.

2.
Sankti Páll segir, í sannri raun
syndarinnar sé dauðinn laun.
Banaspjót hans eru brotin ljót,
boðorðum drottins gjörð á mót.
Sá skal deyja sem syndgar hér,
svoddan úrskurður réttur er.

3.
En það hér heima átti síst
af því Jesús er saklaus víst.
Af helgum anda með hreinum sið
hann var getinn í meyjarkvið.
Guðs föður veru fegurst mynd
frjáls lifði og dó af allri synd.

4.
Hvorki refsing né heljarbað
hafði nú Jesús forskuldað.
Hvað kom þá til að herrann leið
harða pínu og beiskan deyð?
Eða hvar fyrir hirtist hann,
hirtingar til sem aldrei vann?

5.
Guðs andi þar á gjörir skil,
greinir þvílíka orsök til:
Vegna misgjörða vorra hér
vissulega hann særður er
því drottinn lagði svo fyrir sann
syndirnar vorar upp á hann.

6.
Sjá hér, mín sál, fyrir syndir þín
sonur Guðs líður kvöl og pín.
Hann dó fyrir þig sem dauðans bað
dárlega hafði forskuldað.
Hann lét sitt líf svo lifðir þú,
lífs eilífs von því áttu nú.

7.
Á mig var fallin þyngsta þraut
því að ég drottins lögmál braut,
samvisku særði synda gráð,
svo fékk dauðinn sterk yfirráð.
Til fordæmingar mér fjötrin hans
fastlega héldu víst til sanns.

8.
Lögmál safnaði sektum mér,
sektinni dauðinn eftir fer,
dauðinn til dómsins dregur snar,
dómurinn straffið úrskurðar,
straffið um eilífð aldrei dvín,
eilíf því var hin þyngsta pín.

9.
Lögmálið hér sig forgreip fyrst,
felldi það dóm yfir herrann Krist.
Það bauð að sá bölvaður sé
sem bana líður á einu tré.
Djarflega eftir því dauðinn gekk,
drottin frá lífi skilið fékk.

10.
Sekt þá sem lögmál setti mér
saklaus borgaði Jesús hér.
Það missti sína makt í því,
mig verður nú að láta frí.
Dauðans broddur var brotinn þá
burt hans fangelsi slapp ég frá.

11.
Eilífur dauði deyddur er,
dauðinn Jesú það vinnur hér.
Dýrt metur drottinn dauða minn.
Dauði, hvar er nú broddur þinn?
Dauðinn til lífsins nú stutt er stig,
stórlega því dauðinn batar mig.

12.
Dauðinn því orkar enn til sanns,
útslokkna hlýtur lífið manns,
holdið leggst í sinn hvíldarstað,
hans makt nær ekki lengra en það.
Sálin af öllu fári frí
flutt verður himnasælu í.

13.
Í þínum dauða, ó Jesú,
er mín lífgjöf og huggun trú.
Dásemdarkraftur dauða þíns
dreifist nú inn til hjarta míns,
upp á það synd og illskan þver
út af deyi í brjósti mér.

14.
Þú hneigðir þínu höfði ljóst,
herra, þá þú á krossi dóst.
Með því bentir þú mér það sinn
að minnast jafnan á dauða þinn.
Eins, þá ég dey, skulu augun mín
upp líta, drottinn sæll, til þín.

15.
Fyrir þann deyð, sem þoldir þú,
þig bið ég, Jesú, um það nú
að gefi mér þín gæskan blíð
góða kristins manns dauðatíð.
Hold mitt lát hvílast hægt í frið,
hönd þín sálunni taki við.

.....................Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

dárlega: illa
forskulda: verðskulda
sankti (latína): heilagur
synda gráð: mergð synda


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið