28. sálmur
Um Pílatí rangan dóm

1.
Pílatus sá að sönnu þar
sín ráð máttu ei gilda par.
Upphlaup sér búið hræddist hann,
hugði að stilla vanda þann.
Fullnægja vildi fólksins bón,
fá skyldi Jesús dauðans tjón.
Sannleika engum sinnti meir,
svo dæmdi allt sem beiddu þeir.

2.
Hendur í vatni þá nam þvo,
þar næst við Júða mælti svo:
Sjálfir um yður sjái þér,
saklaus við réttlátt blóð ég er.
Allur almúginn upp á það
andsvarar greitt í þessum stað:
Hans blóð þó nú hann kvelji kross,
komi yfir börnin vor og oss.

3.
Pílatus hafði prófað þar
píslarsök drottins engin var.
Fyrir og eftir eins réð hann
úrskurða Jesúm saklausan,
þó mót samvisku sinni þvert
sjálfur viljandi dæmdi bert.
Guð gefi að yfirvöldin vor
varist þau dæmin glæpa stór.

4.
Hvað margur nú í heiminum
hér fyrir lastar Pílatum
sem þó elskar og iðkar mest
athæfið hans og dæmin verst.
Óttinn í dómi oft fær sess,
yfirherrarnir njóta þess.
Almúgans hrósun olli því,
illgjarnir skálkar hlaupa frí.

5.
Ábatavon og vinahót
verkin dylja þó séu ljót.
Líka kemur sú fordild fram
sem forsvarað getur Barrabam.
Gefst þá raunin hvað gilda skal
gulltungan sú sem Akan stal.
Máske og þiggi mútur hinn
meir en Pílatus þetta sinn.

6.
Ég spyr hvað veldur, ódyggð flest
eykst nær daglega og fjölgar mest?
Umsjónarleysi er orsök hæst,
eigin gagnsmunir þessu næst.
Miskunn sem heitir skálkaskjól
skyggnist eftir um fánýtt hól.
Óttinn lögin svo þvingar þrátt,
þora þau ekki að líta hátt.

7.
Fyrir fólkinu þegar þar
þvoði Pílatus hendurnar,
fyrir Guði sér þann gjörði grun,
gilda mundi sú afsökun.
Varastu, maður, heimsku hans.
Hér þó þú villir sjónir manns,
almáttug drottins augsýn skær
allt þitt hjarta rannsakað fær.

8.
Viltu þig þvo þá þvo þú hreint
þel hjartans bæði ljóst og leynt.
Ein laug er þar til eðlisgóð,
iðrunartár og Jesú blóð.
Grát þína synd en set þitt traust
á sonar Guðs pínu efalaust.
Lát af illu en elska gott,
allan varastu hræsnisþvott.

9.
Blóðshefnd á sig og börn sín með
blindaður lýður hrópa réð.
Efldist svo þessi óskin köld,
enn í dag bera þeir hennar gjöld.
Athugagjarn og orðvar sért,
einkum þegar þú reiður ert.
Formæling illan finnur stað,
fást mega dæmin upp á það.

10.
Drottinn Jesú, sem dæmdur varst,
dómari kemur þú aftur snart.
Dómsmenn láttu til dýrðar þér
dómana vanda rétt sem ber.
Þvo þú vor hjörtu og hendur með.
Hrein trú varðveiti rósamt geð.
Þitt blóð flekklaust sem flóði á kross,
frelsi það börnin vor og oss.

.................Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

forsvara: verja
snart: skjótt


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið