14. sálmur
Um þjónanna spott við Kristum

1.
Eftir þann dóm sem allra fyrst
andlegir dæmdu um herrann Krist
hafa þeir því að þá var nótt
þegar til hvíldar gengið skjótt.

2.
Drottinn vor eftir þreyttur þar
þrælum til gæslu fenginn var.
Gjörði að honum gys og dár
guðlausra manna flokkur þrár.

3.
Háðung, spottyrði, hróp og brigsl
hver lét með öðrum ganga á víxl,
hræktu og slógu herrann þar,
hann þó á meðan bundinn var.

4.
Sjáðu og skoða, sála mín,
saklausa lambsins beisku pín.
Hugsa vandlega um það allt
af þessu hvað þú læra skalt.

5.
Hann sem að næturhvíld og ró
hverri skepnu af miskunn bjó
í sinni ógna eymda stærð
engan kost fékk á neinni værð.

6.
Hvíldarnótt marga hef ég þáð,
herra Jesú, af þinni náð.
Kvöl þín eymdum mig keypti frá,
kannast ég nú við gæsku þá.

7.
Nær sem ég reyni sorg eða sótt,
seinast að kemur dauðans nótt,
næturkvala sem neyddu þig
njóta láttu þá, Jesú, mig.

8.
Samviskuslög og satans háð
sefi, Jesú, þín blessuð náð.
Ofboð dauðans og andlátspín
af taki og mýki gæskan þín.

9.
Margur, og víst það maklegt er,
mjög þessum skálkum formælir.
Þó finnast nokkrir hér í heim
að hegðun allri líkir þeim.

10.
Hvað gjöra þeir sem hér á jörð
hafa að spotti drottins orð,
lifa í glæpum ljóst til sanns,
lasta og forsmá þjóna hans?

11.
Sá sem Guðs náð og sannleikann
sér, þekkir, veit og skynja kann,
kukl og fjölkynngi kynnir sér
Kaífas þrælum verri er.

12.
Soninn Guðs ekki þekktu þeir.
Því syndga hinir langtum meir
sem kallast vilja kristnir best,
Kristum þó lasta allra mest.

13.
Hræsnarar þeir sem hrekki og synd
hylja þó undir frómleiksmynd
líkjast þessum er lausnarann
lömdu blindandi og spjöðu hann.

14.
Hverjum sem spott og hæðni er kær
hann gengur þessum selskap nær.
Forsmán guðrækins, fátæks manns
fyrirlitning er skaparans.

15.
Ó vesæll maður, að því gá,
eftir mun koma tíminn sá,
sama hvað niður sáðir hér,
sjálfur án efa upp þú skerð.

16.
Ef hér á jörð er hæðni og háð,
hróp og guðlastan niður sáð,
uppskorið verður eilíft spé,
agg og forsmán í helvíti.

17.
Ætla þú ekki, aumur mann,
af komast muni strafflaust hann
sem soninn hefur hér hætt og spjað,
horfi faðirinn upp á það.

18.
Hvað Jesús nú um næturskeið
nauðstaddur hér af mönnum leið,
óguðlegur um eilífð þá
af illum djöflum líða má.

19.
Ókenndum þér þó aumur sé
aldrei til leggðu háð né spé.
Þú veist ei hvern þú hittir þar
heldur en þessir Gyðingar.

20.
Sjálfan slær mig nú hjartað hart,
hef ég án efa mikinn part
af svoddan illskum ástundað,
auðmjúklega ég meðgeng það.

21.
Sáð hef ég niður syndarót,
svívirðing mín er mörg og ljót.
Uppskerutímann óttast ég,
angrast því sálin næsta mjög.

22.
Herra minn, Jesú, hörmung þín
huggun er bæði og lækning mín.
Sakleysi víst þú sáðir hér,
sælunnar ávöxt gafstu mér.

23.
Blóðdropar þínir, blessað sáð,
ber þann ávöxt sem heitir náð.
Þann sama Guð mér sjálfur gaf.
Sáluhjálp mín þar sprettur af.

24.
Hæddur varstu til heiðurs mér,
högg þín og slög mín lækning er.
Aldrei má djöfull eiga vald
á mig að leggja hefndargjald.

25.
En þér til heiðurs aftur á mót
iðrast vil ég og gjöra bót,
holdsvilja gjarnan hefta minn,
hjálpi mér, Jesú, kraftur þinn.

.......................Amen
 
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

agg: meinsemi, illyrði
dár: háð
spéa (þát. flt: spjöðu): hæða, spotta


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið