29. sálmur
Um Barrabas frelsi

1.
Seldi Pílatus saklausan
son Guðs til krossins dauða.
Upphlaupsmaður sá víg eitt vann,
þá frelsi fann,
fékk líf en missti nauða.

2.
Í myrkvastofu sá bundinn beið,
Barrabas frá ég hann heiti.
Má hér finnast ein merking greið
um mannkyns neyð
mjög skýr að öllu leyti.

3.
Barrabas frá ég að föður og nið
flestir lærðir menn þýði.
Adam líkist þar eflaust við
og allt hans lið
sem á féll dauðans kvíði.

4.
Upphlaupsmaður hann orðinn var
þá eplið í munn sér leiddi.
Sjálfs Guðs boðorði sinnti ei par
og síðan þar
sig og allt mannkyn deyddi.

5.
Í djöfuls fjötrum fastur lá
fanginn til eilífs dauða.
Allir hans niðjar út í frá
með eymd og þrá
áttu von kvala og nauða.

6.
Hér þá Jesú var helið kalt
af heiðnu dæmt yfirvaldi,
fékk Adam sjálfur frelsið snjallt
og fólk hans allt
sem fagnar því lausnargjaldi.

7.
Nú fyrst ég Adams niðji er,
nær mér gengur það dæmi.
Sál mín, set slíkt fyrir sjónir þér
og sjáðu hér
sannferðugt lærdómsnæmi.

8.
Ó, hvað oft hef ég aumur gjört
uppreisn mót drottins anda.
Daglega því hans boðorð bert
svo braut ég þvert,
mér bar þó í hlýðni að standa.

9.
Mun ég ekki við manndráp frí,
mína sál þrátt ég deyddi.
Ill dæmin gáfust af mér ný
og nauðir í
náungann þar með leiddi.

10.
Ófrægður er ég orðinn mest,
allar skepnur það sanna.
Fáráðum ekkert forsvar sést,
fangelsið verst
fyrir því hlýt ég að kanna.

11.
Í myrkvastofu ég bundinn bíð,
bölvan lögmáls mig hræðir.
Dapurt nálægist dauðans stríð
og dómsins tíð,
daglega sorgin mæðir.

12.
Heyri ég nú þann hjálparróm
að hafir þú, Jesú mildi,
fyrir mig liðið líflátsdóm.
Þín líknin fróm
lausan mig kaupa vildi.

13.
Sú heilaga aflausn hryggð og sút
af hjarta mínu greiðir.
Syndanna leysir hlekkjahnút
og hér með út
úr hörðu fangelsi leiðir.

14.
Hvað dauðasaknæmt sást á mér,
svoddan miskunn ég þekki,
til dauða allt var dæmt á þér,
minn drottinn, hér.
Dóminum kvíði ég því ekki.

15.
Líf mitt og sál þig lofar nú
leyst frá dauðans fangelsi.
Ég lifi eða dey, það er mín trú
óbrigðul sú,
í þínu, Jesú, frelsi.

16.
Himneskri páskahátíð á
hef ég nú þess að bíða.
Myrkvastofunni frelstur frá
ég fagna þá
í flokki útvaldra lýða.

17.
Svo er nú Barrabas orðinn frí,
Adam og ég, hans niðji.
Hver kristin sála heimi í
vorn herra því
heiðri, lofi, tilbiðji.

..........Amen  
Hallgrímur Pétursson
1614 - 1674
Orðskýringar:

forsvar: vörn
frá: fregna, frétta, heyra
frómur: góður
niður: sonur, niðji
næmi: námsefni
sannferðugur: traustur, sannur
sút: sorg
þrá: hugsýki, hryggð


Ljóð eftir Hallgrím Pétursson

Um dauðans óvissu tíma
Ölerindi
Allt eins og blómstrið eina
Heilræðavísur
49. sálmur
48. sálmur
47. sálmur
46. sálmur
45. sálmur
44. sálmur
43. sálmur
42. sálmur
41. sálmur
40. sálmur
39. sálmur
38. sálmur
37. sálmur
36. sálmur
35. sálmur
34. sálmur
33. sálmur
32. sálmur
31. sálmur
30. sálmur
29. sálmur
28. sálmur
27. sálmur
25. sálmur
24. sálmur
23. sálmur
22. sálmur
21. sálmur
20. sálmur
19. sálmur
18. sálmur
17. sálmur
16. sálmur
15. sálmur
14. sálmur
13. sálmur
12. sálmur
11. sálmur
10. sálmur
9. sálmur
8. sálmur
7. sálmur
6. sálmur
5. sálmur
4. sálmur
3. sálmur
2. sálmur
1. sálmur
50. sálmur
26. sálmur
Móðurmálið