32. sálmur
Um það visnaða og græna tréð
1.
Greinir Jesús um græna tréð,
getur hins visna einnig með.
Við skulum, sál mín, skoða á ný
skýran lærdóm í máli því.
2.
Frjóvgunareikin vökvuð, væn,
vel blómguð stóð með laufin græn
þegar á jörðu sást til sanns
son Guðs íklæddur holdi manns.
3.
Lífsins ávöxtu ljúfa bar,
læknaði Jesús sóttirnar.
Frá djöfli leysti og dauðans pín,
daufum gaf heyrn en blindum sýn.
4.
Af hverri grein draup hunang sætt,
hjálpræðiskenning fékk hann rætt.
Öll hans umgengni ástúðleg
angraðar sálir gladdi mjög.
5.
Guði var þekkt það græna tréð,
glöddust himnar og jörðin með.
Í hans fæðing það vitnast vann
og við Jórdan þá skírðist hann.
6.
Réttlætis allan ávöxt bar,
inn til krossdauða hlýðinn var,
saklausa lambið, son Guðs einn,
af synd og lýtum klár og hreinn.
7.
Þó mátti ei það eðla tré
angurlaust vera á jörðunni.
Guðs reiðistormur geisa vann,
gekk því refsingin yfir hann.
8.
Ef þú spyrð að hvað valda vann,
vildi Guð láta saklausan
soninn komast í sorgir þær,
sem honum þó var hjartakær.
9.
Þú skalt vita að visnað tré
var mannkyn allt á jarðríki.
Ofan að rótum uppþornað
ávöxt ranglætis færði það.
10.
Skaðsemdartréð sem skemmdi jörð
skipaði drottins reiði hörð
upphöggva svo það ekki þar
akrinum sé til hindrunar.
11.
Vor Jesús mönnum vægðar bað,
vinnast mátti ei að fengist það,
utan hann tæki upp á sig
illvirkjagjöldin hryggileg.
12.
Herrann íklæddist holdi þá,
hingað kom til vor jörðu á.
Visnaðri eik gafst vökvan góð
þá varð úthellt hans dýra blóð.
13.
Saklaus því leið hann sorg og háð
syndugt mannkyn svo fengi náð.
Hið græna tréð var hrakið og hrist,
hér af það visna blómgaðist.
14.
Guðs dýrðarsæti sitt hold í
sonurinn mátti ei hefja því
fyrr en í heimi harða neyð
hafði þolað og krossins deyð.
15.
Ó, hvað manns hold er heimsku fyllt,
hræðilega úr máta villt.
Viljandi í löstum liggur það,
leikur sér alls kyns glæpum að.
16.
Margir ætla fyrst ekki strax
á fellur hefndin sama dags,
drottinn þá aldrei muni meir
minnast á það sem gjörðu þeir.
17.
Því góða trénu þyrmt var síst,
þurrum fausk mun þá bálið víst.
Hafi faðirinn hirt sinn son,
hefndar mun þrællinn eiga von.
18.
Ef nú Guðs mildin ástsamleg,
óhegnda, sál mín, líður þig,
hans þolinmæði haltu hér,
hjálpræðismeðal gefið þér.
19.
Visnað tré ég að vísu er.
Vægðu, réttlætisherrann, mér.
Gæskunnar eikin græn og fín,
geymdu mig undir skugga þín.
20.
Von er að mér sé mótkast víst.
Mun ég umflýja dauðann síst.
Holdið má ei fyrir utan kross
eignast á himnum dýrðarhnoss.
21.
Tæpti ég mínum trúarstaf
á tréð sem drýpur hunang af.
Sjón hjartans öllu angri í
upplýsist nær ég smakka á því.
22.
Þegar mér ganga þrautir nær,
þér snú þú til mín, Jesú kær.
Hjartað hressi og huga minn
himneskur náðarvökvi þinn.
.................Amen
1.
Greinir Jesús um græna tréð,
getur hins visna einnig með.
Við skulum, sál mín, skoða á ný
skýran lærdóm í máli því.
2.
Frjóvgunareikin vökvuð, væn,
vel blómguð stóð með laufin græn
þegar á jörðu sást til sanns
son Guðs íklæddur holdi manns.
3.
Lífsins ávöxtu ljúfa bar,
læknaði Jesús sóttirnar.
Frá djöfli leysti og dauðans pín,
daufum gaf heyrn en blindum sýn.
4.
Af hverri grein draup hunang sætt,
hjálpræðiskenning fékk hann rætt.
Öll hans umgengni ástúðleg
angraðar sálir gladdi mjög.
5.
Guði var þekkt það græna tréð,
glöddust himnar og jörðin með.
Í hans fæðing það vitnast vann
og við Jórdan þá skírðist hann.
6.
Réttlætis allan ávöxt bar,
inn til krossdauða hlýðinn var,
saklausa lambið, son Guðs einn,
af synd og lýtum klár og hreinn.
7.
Þó mátti ei það eðla tré
angurlaust vera á jörðunni.
Guðs reiðistormur geisa vann,
gekk því refsingin yfir hann.
8.
Ef þú spyrð að hvað valda vann,
vildi Guð láta saklausan
soninn komast í sorgir þær,
sem honum þó var hjartakær.
9.
Þú skalt vita að visnað tré
var mannkyn allt á jarðríki.
Ofan að rótum uppþornað
ávöxt ranglætis færði það.
10.
Skaðsemdartréð sem skemmdi jörð
skipaði drottins reiði hörð
upphöggva svo það ekki þar
akrinum sé til hindrunar.
11.
Vor Jesús mönnum vægðar bað,
vinnast mátti ei að fengist það,
utan hann tæki upp á sig
illvirkjagjöldin hryggileg.
12.
Herrann íklæddist holdi þá,
hingað kom til vor jörðu á.
Visnaðri eik gafst vökvan góð
þá varð úthellt hans dýra blóð.
13.
Saklaus því leið hann sorg og háð
syndugt mannkyn svo fengi náð.
Hið græna tréð var hrakið og hrist,
hér af það visna blómgaðist.
14.
Guðs dýrðarsæti sitt hold í
sonurinn mátti ei hefja því
fyrr en í heimi harða neyð
hafði þolað og krossins deyð.
15.
Ó, hvað manns hold er heimsku fyllt,
hræðilega úr máta villt.
Viljandi í löstum liggur það,
leikur sér alls kyns glæpum að.
16.
Margir ætla fyrst ekki strax
á fellur hefndin sama dags,
drottinn þá aldrei muni meir
minnast á það sem gjörðu þeir.
17.
Því góða trénu þyrmt var síst,
þurrum fausk mun þá bálið víst.
Hafi faðirinn hirt sinn son,
hefndar mun þrællinn eiga von.
18.
Ef nú Guðs mildin ástsamleg,
óhegnda, sál mín, líður þig,
hans þolinmæði haltu hér,
hjálpræðismeðal gefið þér.
19.
Visnað tré ég að vísu er.
Vægðu, réttlætisherrann, mér.
Gæskunnar eikin græn og fín,
geymdu mig undir skugga þín.
20.
Von er að mér sé mótkast víst.
Mun ég umflýja dauðann síst.
Holdið má ei fyrir utan kross
eignast á himnum dýrðarhnoss.
21.
Tæpti ég mínum trúarstaf
á tréð sem drýpur hunang af.
Sjón hjartans öllu angri í
upplýsist nær ég smakka á því.
22.
Þegar mér ganga þrautir nær,
þér snú þú til mín, Jesú kær.
Hjartað hressi og huga minn
himneskur náðarvökvi þinn.
.................Amen
Orðskýringar:
klár: hreinn
klár: hreinn