Loksins er komið sumarið !!!
Komið er sumar eftir langa bið
Getum þá verið meira úti við
Verið úti og sleikt vorsól
Allir gleðjast og fara á ról

Út að hlaupa, út að hjóla
Farið í snú-snú eða að róla
Gengið kannski niður að sjó
farið í ágúst í berjamó

Fara í sund og busla mikið
sumarið getur engan svikið
ferðast um landið og vera saman
á sumrin er alltaf gaman

Liggja úti í sól og hita
mikið er gott það að vita
að loksins er lokið þessari bið
loksins er komið sumarið
 
Katrín Ruth Þ.
1979 - ...


Ljóð eftir Katrínu Ruth Þ.

Afi minn
Fyrirgefðu
Ef vin þú átt...
sofðu rótt
ég get ekki sofið!
Að bíða
Missir
Elsku frændi
Það sem skiptir máli……
Elsku afi
Elsku amma!!!
Ást
Til vinkonu
Óttast þú ei
Þú átt mig að
Ást er...
Ein
Minn elsku besti pabbi
Mín elsku besta mamma
Biðin langa
Ljósið
Regnboginn
Bak við grímuna
Hvíl í friði elsku mamma!
Loksins er komið sumarið !!!
Það þarf bara eitt
Söknuður
Afhverju?
Sólin mín
Brostu
Einstök amma
Ein
Kæri Leynivinur!!!